Færsluflokkur: Bloggar

Reiðhjól fanst á vergangi. Lásinn er: "Inn, Út, Inn, Inn og Út"

Eigandi getur vitjað þess hjá sýslumanninum í Trékyllisvík.
mbl.is Hver á skóinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvors er sökin, bakarans eða smiðsins?

Mig langar að lýsa furðu minni á þeirri histeríu sem virðist hafa gripið lungan af lýðnum.  Rétt er það að akstursaðstæður á þessum kafla eru ekki sem best væri á kosið, en hversu langt skal seilst í þeirri viðleitni að nálgast hinn minnsta samnefnara?  Er það ekki á hvers ábyrgð að haga akstri eftir aðstæðum og fylgjast með þeim umferðarmerkjum sem eiga við akstur á hverjum stað?  Eða er máski búið að fella kaflan um umferðarmerki úr námsskrá ökunáms?

 

Mig langar að benda lesendum á þessi umferðarmerki hér og þá þýðingu sem þau hafa:

 

Vegavinna Merki þetta ber að nota þegar nauðsynlegt þykir að benda á stað þar sem unnið er að framkvæmdum á vegi.

 

 

 

 

Tvístefnuakstur

Merki þetta ber að nota þegar æskilegt þykir að vekja athygli á tvístefnuakstri, t.d. á vegarkafla sem kemur í beinu framhaldi af einstefnuakstursvegi.

 

 

 

 

Vegur mjókkar Merki þetta ber að nota þar sem nauðsynlegt þykir að benda á að vegur mjókki verulega á þann hátt sem merkið sýnir.

 

 

 

 

Sérstök takmörkun hámarkshraðaMerki þetta ber að nota til að sýna leyfðan hámarkshraða ökutækja í km á klst.

 

 

 

 

 

 Nú er ég búsettur erlendis, og hef því takmarkað ekið um þessar slóðir.  Var þó þar á ferð í mars 2008 og þóttist þá sjá merki þessi öll.  Get því varla séð hvernig standa mætti betur að merkingum.  Máski ætti vegagerðin að ráða í vinnu til sín viðmótshönnuð?  Þeir eru jú vanir því að hugsa út í alla þá forheimsku sem fólki dettur í hug.


mbl.is Reiður út í þá sem bera ábyrgð á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsing? (NT)

NT
mbl.is Lostalengjur úr ærkjöti frá Ströndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á mér von!

Nú bíð ég bara eftir að mínir menn í Samtökum Neopúritana og Helgargræningja leggi fram þingsályktunartillögu um að lögum þessum verði framfylgt!
mbl.is Lagt til að lög um meðferð ölvaðra og drykkjusjúka verði afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var og!

Héðinsfjarðarflokkurinn fríði Hver segir svo að spilling þrífist ekki í íslensku stjórnsýslunni.  Fínt að geta fengið jarðgöng byggð í sumarbústaðinn sinn á kostnað íslenska skattþrælsins.
mbl.is Siglfirðingar fjölmennir á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeirra vegna...

Vona bara að þeir muni eftir að telja fram vinningféð.

mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fatwa!


Neopúritaninn lýsir hérmeð Fatwa á hendur Lýði Guðmundssyni og Brynjólfi Bjarnasyni! Skulu þeir löðrungaðir með silung, hvar sem til þeirra næst!
mbl.is Miklar umræður á meðal bloggara um nýja auglýsingu Símans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessu framtaki ber að fagna!

Landinn hefur löngum verið plagaður af þeim misskilningi að öl skuli drukkið kalt.  Það er þannig að bragð drykkjarins fylgir að miklu leiti því hve kaldur hann er.  Sé hann drukkin við kæliskápshita eða (guðeinhver forði oss frá því) enn kaldari, þá er það þannig að mikill hluti bragðsins tapast. 
mbl.is Kælirinn fjarlægður úr vínbúðinni í Austurstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varúð skal höfð!

Hér eru ill tíðindi!  Fyrir þá sem ekki vita þá er ethanól fræðimannsheitið yfir það sem leikmenn kalla alkóhól, einnig þekkt sem vínandi.  Það er sem kunnugt er hið virka innihaldsefni í áfengu veigum þeim sem seldar eru í áfengiseinkasölu ríkisins.  Vínandaneysla er eitt hið mesta vandamál sem samfélag okkar á við að glíma, og er á hverju ári veitt allmörgum af hinum dýrmætu skattkrónum okkar í að berjast gegn áfengisbölinu.  Þetta er ekkert nema illa dulbúin tilraun til að einkavæða sölu á áfengum veigum.  Ég treysti á að samtök Neopúrítana og Helgargræningja berjist gegn þessari illu þróun á þingi.
mbl.is Flytja inn etanól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband