20.6.2008 | 12:42
Reiðhjól fanst á vergangi. Lásinn er: "Inn, Út, Inn, Inn og Út"
Hver á skóinn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2008 | 12:37
Hvors er sökin, bakarans eða smiðsins?
Mig langar að lýsa furðu minni á þeirri histeríu sem virðist hafa gripið lungan af lýðnum. Rétt er það að akstursaðstæður á þessum kafla eru ekki sem best væri á kosið, en hversu langt skal seilst í þeirri viðleitni að nálgast hinn minnsta samnefnara? Er það ekki á hvers ábyrgð að haga akstri eftir aðstæðum og fylgjast með þeim umferðarmerkjum sem eiga við akstur á hverjum stað? Eða er máski búið að fella kaflan um umferðarmerki úr námsskrá ökunáms?
Mig langar að benda lesendum á þessi umferðarmerki hér og þá þýðingu sem þau hafa:
Merki þetta ber að nota þegar nauðsynlegt þykir að benda á stað þar sem unnið er að framkvæmdum á vegi.
Merki þetta ber að nota þegar æskilegt þykir að vekja athygli á tvístefnuakstri, t.d. á vegarkafla sem kemur í beinu framhaldi af einstefnuakstursvegi.
Merki þetta ber að nota þar sem nauðsynlegt þykir að benda á að vegur mjókki verulega á þann hátt sem merkið sýnir.
Merki þetta ber að nota til að sýna leyfðan hámarkshraða ökutækja í km á klst.
Nú er ég búsettur erlendis, og hef því takmarkað ekið um þessar slóðir. Var þó þar á ferð í mars 2008 og þóttist þá sjá merki þessi öll. Get því varla séð hvernig standa mætti betur að merkingum. Máski ætti vegagerðin að ráða í vinnu til sín viðmótshönnuð? Þeir eru jú vanir því að hugsa út í alla þá forheimsku sem fólki dettur í hug.
Reiður út í þá sem bera ábyrgð á Reykjanesbraut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.11.2007 | 13:47
Auglýsing? (NT)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.11.2007 | 12:37
Frétt um ekki neitt
Þessi frétt er augsýnilega skrifuð af einhverjum sem ekki hefur mikla þekkingu á málinu. Þannig er mál með vexti að fátt er í heimi þessu fríkeypis, og er það þannig með fjarskiptabúnað. Þó svo að símstöð sé á svæðinu þá er það ekki sjálfsagt að boðið sé uppá ADSL þjónustu, þar sem til þess þarf aðra og óskylda einingu sem kostar nokkra peninga. Einn stærsti ókostur ADSL tækninnar er það hve skammdræg hún er. Nú þekki ég ekkert til þessarar sveitar og hvernig byggð háttar þar, en ætla þó að leyfa mér að áætla að hugsanlega notendur þar megi telja á útlimum farþega meðalbifreiðar, og er þarmeð nokkuð augljóst að fjárfesting í þeim búnaðinum væri afar vafasöm og myndi seint standa undir sér.
Svo er það líka annað í þessari frétt sem vekur athygli mína. Það er heimtufrekjan í þessum annesja- og útnáralýð. Hví ættu þeir sem búa á hagkvæmari landsvæðum sífellt að standa í því að niðurgreiða búsetu þessa ofdekraða lýðs? Ef hann er þetta ákveðinn að búa þarna þá er ekkert annað en sjálfsagt að hann taki þátt í kostnaðinum við það.
Borga 60 þúsund fyrir 2 megabita tengingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2007 | 13:01
Ég á mér von!
Lagt til að lög um meðferð ölvaðra og drykkjusjúka verði afnumin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2007 | 09:33
Það var og!
Siglfirðingar fjölmennir á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.9.2007 | 21:39
Þeirra vegna...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 18:57
Fatwa!
Neopúritaninn lýsir hérmeð Fatwa á hendur Lýði Guðmundssyni og Brynjólfi Bjarnasyni! Skulu þeir löðrungaðir með silung, hvar sem til þeirra næst!
Miklar umræður á meðal bloggara um nýja auglýsingu Símans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2007 | 16:55
Þessu framtaki ber að fagna!
Kælirinn fjarlægður úr vínbúðinni í Austurstræti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.7.2007 | 16:11
Hin spánska sjón
Á þessari hátíð tíðkast það að foreldrar barnanna elda rétti að heiman (demógrafían er ca. 30% Íslendingar, 30% Færeyingar, 30% Danir og 10% af öðrum uppruna). Með matnum eru boðin drykkjarföng til kaups. Það varð þess valdandi að ég rita þennan pistil var það úrval drykkjarfanga sem boðið var uppá. Eins og búast mátti við var þar á boðstólnum ávaxtasaft. Örlitla furðu vakti að þar var einnig boðið upp á gosdrykki, sem þó hefði ekki þótt merkilegt fyrir stofnun lýðheilsustöðvar. Nei, hið almerkilegasta var að þar var einnig boðið uppá öl af krana og borðvín. Sé ég fyrir mér viðbrögð Þorgríms ef hann frétti af þessu. Væri hann vís til þess að drepa í vindlinum og snúa sér við í sófanum (hann er víst ekki kominn í gröfina enn (megi hann tóra í þúsund ár)). Einnig þótti mér markvert það æðruleysi sem landinn tók þessu frjálslyndi. Ekki varð ég var annað en að hann sæti á strák sínum og ekki bar á ofurölvun og drykkjulátum. Gæti það verið að þetta tengist eitthvað landfræðilegri legu? Má það vera að eftir því sem nær dragi miðbaug að dragi úr "tendens" til misbeitingar áfengra drykkja?
Að lokum má svo geta þess að eftir að pöpullinn hélt heim þá settist starfsfólkið við drykkju fram eftir kvöldi, og mætti svo aftur til vinnu morguninn eftir (föstudagsmorgni).